Fara í efni

Bílabúð Benna í eyjum

Fréttir

Það er öruggur vorboði þegar Bílabúð Benna leggur land undir fót og þeytist með nýju bílana sína landshorna á milli. Snæfellsnes var heimsótt um síðustu helgi og nú bruna þeir með bílalestina til Vestmannaeyja og slá upp sýningu bæði laugardag og sunnudag, 17. og 18. maí. 

Til sýnis verða nýjustu bílarnir frá Chevrolet, en auk þess munu Eyjaskeggjar fá að berja augum nýja sportjeppann Macan frá  Porsche, sem frumsýndur var nú á dögunum. 

Bílasýningin verður haldin við bíla- og vélaverkstæðið Nethamar, Garðavegi 1, laugardag og sunnudag, frá kl. 12:00 til 16:00 báða dagana. Allir eru hjartanlega velkomnir og hressing á boðstólum.