Fara í efni

Benedikt S. Benediktsson ráðinn framkvæmdastjóri SVÞ

Fréttir

Benedikt S. Benediktsson, lögfræðingur, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu og mun hann hefja störf 1. september nk.

Benedikt útskrifaðist með Mag. Jur. gráðu frá lagadeild Háskóla Íslands 2010. Hann var nefndarritari á nefndasviði Alþingis 2010–2015, deildarsérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneyti 2015–2019 og hefur frá ársbyrjun 2019 gegnt starfi lögfræðings SVÞ ásamt því að vera staðgengill framkvæmdastjóra.

Benedikt hefur sem lögfræðingur SVÞ aðstoðað aðildarfyrirtæki samtakanna á breiðu sviði, ásamt því að annast almenna og sértæka hagsmunagæslu fyrir hönd samtakanna. Hann þekkir því starfsemi samtakanna afar vel.

Benedikt segir starfið leggjast afar vel í sig: „Starfsemi aðildarfyrirtækja SVÞ er á afar breiðu sviði, viðfangsefnin fjölbreytt og við stjórnendum blasa sífelldar áskoranir. Við finnum að fyrirtækin reiða sig oft samtakamáttinn sem starf SVÞ grundvallast á og það er verðugt verkefni að gæta hagsmuna rúmlega fjögur hundruð fyrirtækja. Það er eitt megin verkefni SVÞ að tryggja að til staðar séu tækifæri til hagræðingar, ekki síst með nýtingu stafrænnar tækni og gervigreindar. EES-samningurinn hefur reynst okkur afar vel en honum fylgja líka áskoranir. Innleiðing viðbótakrafna verður að taka mið af mati á getu fyrirtækja til að takast á við þær. Ég þakka traustið og stuðninginn sem stjórn SVÞ hefur sýnt mér en vil nota tækifærið og hrósa starfsfólki aðildarfyrirtækja samtakanna því án ykkar stæðum við ekki í þeim sporum sem við stöndum nú.“

Jón Ólafur Halldórsson, formaður SVÞ kveðst afar ánægður með þessa niðurstöðu: „Það var einhugur innan stjórnar samtakanna um að ráða Benedikt sem framkvæmdastjóra. Hann hefur sýnt það í störfum sínum fyrir samtökin sl. fimm ár að hann hefur víðtæka þekkingu og reynslu til að bera sem án vafa mun nýtast vel í starfi hans sem framkvæmdastjóra. Hann þekkir innviði stjórnsýslunnar, er vanur samskiptum við stjórnvöld og hefur haldgóða þekkingu og reynslu af áskorunum sem blasa við atvinnulífinu á borð við stafræna umbreytingu, sí- og endurmenntun starfsfólks og auknar kröfur um sjálfbærni.