Fara í efni

Askja með bílasýningu á Egilsstöðum

Fréttir

Bílaumboðið Askja heldur glæsilega bílasýningu á Egilsstöðum um helgina í samstarfi við BVA – Bílaverkstæði Austurlands sem er sölu- og þjónustuaðili Kia á Austurlandi. Hin breiða fólksbílalína frá Kia verður til sýnis sem og Mercedes-Benz Citan og Sprinter atvinnubílar sem notið hafa vinsælda. Sýningin verður bæði laugardag og sunnudag milli klukkan 12-16 í flottum sýningarsal BVA.

,,Við erum á ferðinni um landið þessar vikurnar. Um síðustu helgi var Kia sýning á Sauðárkróki sem heppnaðist mjög vel og núna ætlum við að heimsækja Egilsstaði. Það er gaman að geta farið á landsbyggðina og boðið upp á bílasýningar. Við finnum fyrir miklu þakklæti og velvild heimamanna með þessar sýningar og það gefur okkur sem að þessu stöndum auðvitað aukinn innblástur,“ segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Öskju, sem er umboðsaðili Kia og Mercedes-Benz á Íslandi.