Fara í efni

Árleg jeppasýning Toyota fer fram laugardaginn 25. febrúar frá klukkan 12.00 - 16.00 í fjallasal Toyota Kauptúni.

Fréttir

Við frumsýnum Hilux Invincible með 33" breytingu, ósigrandi harðjaxl með aukahlutapakka að verðmæti 780.000 kr. og kynnum tilboð á Adventure aukahlutapakka fyrir Land Cruiser 150 ásamt því að sýna ýmsar aðrar útfærslur á Land Cruiser, Hilux og RAV4.

Auk þess verða sýnd fjórhjól, sexhjól, Buggy-bílar og Brenderup-kerrur í samstarfi við Ellingsen og útivistargræjur, fjallaskíði, GPS-tæki frá Garmin og fleiri græjur til fjallaferða. Í tilefni af 90 ára afmæli
Ferðafélags Íslands bjóðum við þau velkomin til okkar og munu þau kynna fjölbreytt og skemmtilegt starf sitt á sýningunni.

Spennandi getraunir, glæsilegir vinningar, breyttir jeppar á útisvæði og í sýningarsal þar sem ferðagleðin verður í fyrirrúmi.

Komdu þér í ferðagírinn með okkur í Kauptúni segir í fréttatilkynningu frá Toyota.