Fara í efni

Árið fer vel af stað

Fréttir

Sala á nýj­um fólks­bíl­um í nýliðnum janú­ar jókst um 25,5% miðað við sama mánuð fyr­ir ári. Ný­skráðir  fólks­bíl­ar voru 680 stykki á móti 542 í fyrra.

Í til­kynn­ingu frá Bíl­greina­sam­band­inu seg­ir, að bú­ist sé við áfram­hald­andi já­kvæðri þróun í sölu nýrra bíla,  enda bíla­flot­inn gam­all og þörf­in fyr­ir end­ur­nýj­un mik­il.

Bíl­greina­sam­bandið spá­ir því að á þessu ári muni ný­skrán­ing­ar fólks­bíla verða í kring­um 10.800 stk. Á ár­inu 2014 voru ný­skráðir 9536 fólks­bíl­ar og er því gert ráð fyr­ir um það bil 14% aukn­ingu á þessu ári frá því fyrra seg­ir, að sögn Özurs Lárus­son­ar fram­kvæmda­stjóra Bíl­greina­sam­bands­ins.