Fara í efni

Aðventuboð Mercedes-Benz

Fréttir

Aðventuboð Mercedes-Benz

Bílaumboðið Askja verður með aðventuboð Mercedes-Benz nk. laugardag 8. desember kl. 12-16. Boðið verður upp á valda Mercedes-Benz bíla á sérstökum kjörum og með hverjum bíl fylgir veglegur aukahlutapakki.

Askja býður einnig sérstök kjör á aukahlutum og gjafavöru frá Mercedes-Benz en boðið verður upp á allt 30-45% afslátt af vörum þennan dag. Gestir geta auk þess tekið þátt í spennandi happdrætti með glæsilegum vinningum.

,,Við ætlum að hafa notalega jólastemmningu hér hjá okkur með léttum jólaveitingum og bjóðum auk þess upp á ýmiss vegleg tilboð. Það er því tilvalið fyrir fólk að líta við og kaupa jólagjöf fyrir Mercedes-Benz aðdáendur á mjög góðu verði," segir Ásgrímur Helgi Einarsson, sölustjóri Mercedes-Benz hjá Öskju.