Aðalfundur Iðunnar fræðsluseturs ehf. verður haldinn 9. október 2025 kl. 12 í húsnæði félagsins að Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík, 1. hæð.
Á fundinum verður m.a. farið yfir skýrslu stjórnar, ársreikning og kosningu stjórnar. Einnig verða bornar upp tillögur um breytingar á samþykktum félagsins.
Dagskrá:
-
Skýrsla stjórnar
-
Efnahags- og rekstrarreikningur félagsins, ásamt athugasemdum endurskoðanda
-
Ákvörðun um meðferð hagnaðar eða taps og framlög í varasjóð
-
Áætlun fyrir komandi starfsár
-
Kosning stjórnar félagsins og löggilts endurskoðanda
-
Ákvörðun greiðslna til stjórnarmanna og kynning á starfskjarastefnu
-
Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins bornar upp til samþykktar
-
Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur mál sem löglega eru borin upp