Fara í efni

Aðalfundur Bílgreinasambandsins

Fréttir

Fundur hefst á spennandi fyrirlestrum en Gísli Hauksson forstjóri hjá Gamma fjárfestingafélagi mun hefja umræðuna og fjalla um fjárfestingaþörf í samgöngumannvirkjum. Á eftir honum mun  Steingrímur Birgisson forstjóri hjá Höldur halda erindi um þjónustu og framtíðarhorfur bílaleigugeirans, en sú grein hefur mikið með umhverfi bílgreinarinnar að gera í nútíð og framtíð. Að lokum mun Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur vera með erindi sem hann kallar að vinna sigra saman. Jóhann Ingi hefur mikla reynslu í því að byggja upp liðsheild og trú á sjálfum sér enda mikið starfað með afreksfólki í íþróttum. Málstofu lýkur kl. 15:30  á þá verður gert stutt kaffihlé

Hefðbundin aðalfundarstörf hefjast kl. 15:45.

Setning fundar                Staðgengill formanns

 

Venjuleg aðalfundarstörf  

                                  

  

  

Dagskrá skv. 8. gr. laga BGS  

1. Skýrsla stjórnar. Staðgengill formanns

2. Reikningar skýrðir og bornir upp til samþykktar.  

3.    Kosning stjórnar.  

4.    Önnur mál.  

Menn eru hvattir til að taka daginn frá og skrá sig á aðalfundinn en þar gefst tækifæri til að hlýða á fróðleg erindi, taka þátt í umræðunni og hitta aðra í greininni