Fara í efni

Aðalfundur Bílgreinasambandsins

Fréttir

Aðalfundur Bílgreinasambandsins haldinn á Hótel Reykjavík Natura  Fimmtudaginn 26. mars og hefst kl. 14:00.

 

 Málstofur hefjast kl 14:00

Málningar og réttingarverkstæði verða með málstofu í Þingsal 3

Gestir á fundi verða þeir Jóhann Jóhannsson deildarstjóri ökutækjatjóna hjá VÍS og Sævar Helgi Lárusson frá Rannsóknarnefnd samgönguslysa. Munu þeir ræða við fundarmenn um tjónabíla, meðferð þeirra, viðgerðir,sölu, skráningu ofl.

Verkstæðisnefnd og Sölunefndir varahluta, nýrra bíla og notaðra bíla munu funda í sömu málstofu í Þingsal 2

Gestir á þeim fundi verða Ragnhildur D Þórhallsdóttir hópstjóri eftirlistsviðs RSK og Óskar H Albertsson skrifstofustjóri virðisaukaskattsskrifstofu sem munu ræða um svarta atvinnustarfsemi í greininni og aðgerðir til að sporna við henni. Einnig mun Aðalbjörg Guðmundsdóttir hdl hjá Cato lögmönnum og Ævar Friðriksson frá FÍB koma á fund og ræða ábyrgðir á varahlutum, vinnu við bíla og vörslu. Einnig verður rætt um ábyrgðir og skyldur sölumanna gagnvart sínum viðskiptavinum hvort sem um er að ræða sölu á nýjum bílum eða notuðum.

Málstofum líkur kl. 15:30 og gefst þá tími til að fá sér kaffi.

 

Aðalfundur hefst  svo kl. 15:45 í Þingsal

 

Kl. 15:45 – 16:00

Setning fundar:

                                 

 

Jón Trausti Ólafsson formaður BGS.

Kl. 16:00 – 16:40

Erindi: „Af viðskiptavinum og viðskiptaÓvinum“.

 

                                 

Eyþór Eðvarðsson hjá Þekkingarmiðlun hefur starfað við stjórnendaþjálfun og ráðgjöf síðan 1996 bæði hér og í Hollandi og hefur víðtæka reynslu. Hann hefur starfað með flestum stærri fyrirtækjum Íslands í stórum og litlum verkefnum, bæði í góðæri og krísum. Eyþór hefur birt fjölda greina í íslenskum og erlendum tímaritum, m.a. um tilfinningagreind, stjórnun, samskipti, breytingar, starfsánægju og vinnustaðarmenningu.  

Kl. 16:40 – 17:30

Venjuleg aðalfundarstörf

                                 

 

 

Dagskrá skv. 8. gr. laga BGS

1. Skýrsla stjórnar. Jón Trausti Ólafsson formaður 2. Reikningar skýrðir og bornir upp til samþykktar.

3.    Lagabreytingar.

4.    Kosning stjórnar.

5.    Önnur mál.

Kl. 17:30 – 18:00

Léttar veitingar í boði BGS. 

 

Menn eru hvattir til að taka daginn frá og skrá sig á aðalfundinn en þar gefst tækifæri til að hlýða á fróðleg erindi, taka þátt í umræðunni og hitta aðra í greininni.

Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst og taka fram fjölda frá hverju fyrirtæki á netfangið: bgs@bgs.is eða í síma 568-1550