Fara í efni

96% nýskráðra Volvo bíla eru hybrid bílar

Fréttir

96% nýskráðra Volvo lúxusbíla á Íslandi eru hybrid bílar

Bílaframleiðandinn Volvo Cars Group hefur verið í sókn á heimsvísu með tengiltvinntækni (PHEV) undanfarin ár og nýlega bættist í flóruna Mild Hybrid dísilbílar og ekki er langt að bíða þar til Brimborg kynnir 100% hreinan rafmagnsjeppa af gerðinni Volvo XC40.

Fyrstu sjö mánuði ársins hafa verið nýskráðir 241 nýr bíll af Volvo gerð en ekkert lát er á vinsældum Volvo sem undanfarin ár hefur verið mest seldi lúxusbíllinn á Íslandi. Það má ekki síst þakka forystu Volvo í hybrid tækninni en 96% af sölu Volvo á Íslandi eru hybrid bílar. Af þeim eru 84% búnir tengiltvinntækni (PHEV) og 12% búnir Mild Hybrid tækni.

Vinsælustu Volvo hybridbílarnir eru jepparnir þrír, Volvo XC40, Volvo XC60 og Volvo XC90. Fljótlega mun Brimborg síðan kynna fyrsta 100% hreina rafmagnsjeppann frá Volvo sem verður af XC40 gerð.