- 65,8 % aukning í nýskráningum fólksbíla í febrúar samanborið við fyrra ár.
- Alls voru nýskráðir 1.048 nýir fólksbílar í febrúar sl. á móti 632 á síðasta ári.
- 72,9% aukning í nýskráningum frá 1.janúar til 29. febrúar miðað við fyrra ár.
Sala á nýjum fólksbílum frá 1. janúar til 29 febrúar sl. jókst um 72,9% miðað við sama tíma á síðastliðnu ári, en nýskráðir fólksbílar á þessu tímabili voru 2.267 á móti 1.312 miðað við sama tímabil 2015 eða aukning um 957 bíla.
Þar af eru nýskráðir bílaleigubílar 892 stk. eða 39,3% af nýskráningum. Á sama tíma 2015 voru nýskráðir bílaleigubílar 388 stk.
Þó sala til einstaklinga og fyrirtækja hafi tekið við sér á síðasta ári og áframhald sé á þeirri þróun þá er sú fjölgun sem á sér stað í fjölda ferðamanna aðal drifkraftur í sölu nýrra bíla eins og sjá má á nýskráningartölum.