Fara í efni

7 ára ábyrgð á nýjum Peugeot bílum

Fréttir

Brimborg býður nú alla nýja Peugeot bíla með víðtækri 7 ára ábyrgð auk 8 ára ábyrgðar á drifrafhlöðu rafbíla.

NÝIR RAFBÍLAR OG LENGRI ÁBYRGÐ
Árið 2020 hefur verið viðburðaríkt fyrir Peugeot á Íslandi. Tveir nýir hreinir rafbílar og einn tengiltvinn rafbíll hafa verið kynntir og nú býður Brimborg alla nýja Peugeot bíla með víðtækri 7 ára verksmiðjuábyrgð og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu raf- og tengiltvinn rafbíla. Ábyrgðin gildir fyrir fólks- og atvinnubíla. Ábyrgðin er í boði á bílum keyptum af Brimborg sem koma í reglulega þjónustu skv. ferli framleiðanda í allt að 7 ár eða allt að 140 þús. km. Ávinningur af reglulegum þjónustuskoðunum og lengri verksmiðjuábyrgð er aukin gæði, meira öryggi, lægri rekstrarkostnaður, hærra endursöluvirði og hraðari endursala.

FORSENDUR ÁBYRGÐAR
Greinargóðar upplýsingar um skilmála ábyrgðar nýrra Peugeot hjá Brimborg er finna í rafrænni eigandahandbók ásamt viðauka sem söluráðgjafi fer vel yfir við afhendingu nýrrar bifreiðar til viðskiptavinar. Við þjónustueftirlit er fylgt stöðluðu ferli framleiðanda sem tryggir að bíllinn er ávallt í topp standi. Þjónustuverkstæði Brimborgar eða aðrir viðurkenndir þjónustuaðilar Brimborgar framkvæma reglubundna þjónustu á 12 mánaða eða 15.000 km fresti hvort sem kemur á undan km. fjöldi eða tími og er þjónustueftirlitið á föstu verði.

Allir viðurkenndir þjónustuaðilar Peugeot geta annast viðgerðir sem falla undir ábyrgð en þjónustuaðila Brimborgar um land allt má finna HÉR.

Nánari upplýsingar um 7 ára ábyrgð á nýjum Peugeot bílum er að finna á vef Peugeot á Íslandi | Brimborg eða hjá sölustjóra , Benný Ósk Harðardóttur á bennyh@brimborg.is eða í síma 5157802.