Þess verður minnst um komandi helgi, að 50 ár eru liðin frá því Ford Mustang sá fyrst dagsins ljós. Verða dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang-bílar landsins samankomnir á sérstakri afmælissýningu í Brimborg um komandi helgi.
Aðgangur er ókeypis og sýningin, sem fram fer í Fordsalnum að Bíldshöfða 6, verður opin frá kl. 11-16, bæði laugardag og sunnudag. Á staðnum verða hvorki meira né minna en 50 bílar til að fagna afmæli Mustang. Meðal þeirra verður Mustang Shelby GT-500 Eleanor frá 1967 sem er eftirlíking af bílnum úr myndinni Gone in 60 Seconds.
Mustang Mach-1 frá 1971 verður líka á staðnum en sá bíll hefur verið í uppgerð í meira en 30 ár og er töluvert breyttur.
Elsti Ford Mustang landsins verður einnig til sýnis. Sá var framleiddur 8. maí ´64, eða einungis þremur vikum eftir að Ford Mustang kom fyrst á markað.
Mustang Boss 429 frá 1969 í upprunalegu ástandi verður líka á sýningunni en einungis 859 eintök af bílnum voru framleidd. Ekki má gleyma Mustang HCS af árgerðinni 1966 en aðeins 333 eintök voru smíðuð og þessi bíll er eini bíllinn utan Bandaríkjanna.
Þetta er einungis brot af því bílaúrvali sem verður til sýnis en meðal fjölda annarra spennandi bíla verða Mustang Saleen Sterling S302E, en af honum voru einungis 25 framleiddir, Mustang LX frá 1986, sem er hraðskreiðasti Mustang landsins, og Mustang Shelby GT-500 frá 2007, sem er margfaldur Íslandsmeistari í kvartmílu.