Sala á nýjum fólksbílum frá 1. janúar til 31.ágúst sl. jókst um 38,2% miðað við sama tíma á síðastliðnu ári, en nýskráðir fólksbílar á þessu tímabili voru 14.918 á móti 10.794 miðað við sama tímabil 2015 eða aukning um 4124 bíla.
Sala nýrra bíla hefur verið góð það sem af er ári og með áframhaldandi góðri sölu á nýjum bílum ætti meðalaldur bíla hér á landi að færast nær því sem gengur og gerist í þeim löndum sem við gjarnan berum okkur saman við. Enn er nokkuð í land en horfurnar eru góðar. Svo virðist sem almenningur fjármagni bílakaup með öðrum hætti en fyrir hrun en samkvæmt upplýsingum söluaðila er áberandi minna um að fólk taki lán fyrir bílakaupum og í þeim tilfellum sem lán er tekið er það mun minna hlutfall af kaupverði sem tekið er að láni.
Um það bil helmingur nýskráðra bíla hér á landi eru bílaleigubílar en ört stækkandi markaður er fyrir bílaleigubíla samfara aukinni ferðamennsku hér á landi segir í frétt frá Bílgreinasambandinu.