Fara í efni

Polestar kemur til Íslands

Fréttir

 

 Polestar 2, hágæða rafbíll með afburða aksturseiginleika, verður hægt að panta á com/is frá og með 25. nóvember næstkomandi     Brimborg er opinber umboðsaðili fyrir Polestar rafbíla á Íslandi

  • Polestar 2 Long range Dual motor kostar frá 6.750.000 kr.
  • Fyrsti Polestar Space sýningarsalurinn opnar 25. nóvember í Reykjavík

Polestar, sænskur framleiðandi hágæða rafbíla með afburða aksturseiginleika, hefur hafið sölu bíla sinna á Íslandi með Polestar 2 rafbílnum. Polestar hefur valið Brimborg, sem er einn fremsti sölu- og dreifingaraðili bíla á landinu, til að vera umboðsaðili sinn á Íslandi.

Nils Mösko, forstöðumaður stefnumótunar og viðskiptaþróunar hjá Polestar, segir: „Við hlökkum til að koma með Polestar til Íslands sem er í fararbroddi í heiminum þegar kemur að grænni orku. Þar sem raforkan á Íslandi er næstum 100% endurnýjanleg og metnaður okkar til að ná kolefnishlutleysi er mikill, erum við líka mjög stolt af því að bæta Íslandi við markaðssvæðin okkar. Sem framleiðandi hágæða rafbíla fannst okkur Brimborg vera kjörinn samstarfsaðili og við erum ákaflega ánægð með að vera komin í samstarf með þeim.“

 

„Ég trúi því að sérhæft, hágæða, rafbílamerki á borð við Polestar sem státar af afburða aksturseiginleikum muni hrista rækilega upp í bílamarkaðnum og leggjast af krafti á árarnar með okkur Íslendingum við að ná metnaðarfullu markmiði Íslands um að verða fyrsta jarðefnaeldsneytislausa landið í heiminum árið 2050. Við hjá Brimborg erum eðlilega mjög spennt fyrir því að vera orðin opinber umboðsaðili Polestar á Íslandi, “ segir Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar. „Við bíðum þess með eftirvæntingu að kynna Polestar upplifunina fyrir neytendum og það er enginn vafi á því að bíll á borð við Polestar 2 mun festa sig í sessi sem leiðandi á markaði hágæða rafbíla“

Polestar netkaup og Polestar Space sýningarsalur

Polestar rafbílar eru keyptir á polestar.com/is í gegnum einfalt og fullkomlega stafrænt ferli sem stutt er við með sölustöðum víða um heim sem ganga undir nöfnunum Polestar Space og Polestar Destination. Þessir sérhönnuðu sölustaðir skapa neytendum einstaka upplifun af vörumerkinu og gera þeim kleift að eiga þægileg samskipti við Polestar sérfræðinga til að kynna sér bílana í þaula, þar á meðal með reynsluakstri. Polestar Space sýningarsalur opnar í Reykjavík hjá Brimborg þann 25. nóvember næstkomandi en stærri, varanlegur, Polestar Destination sýningarsalur opnar í Brimborg á fyrsta fjórðungi ársins 2022.

Polestar 2

Polestar 2 er framúrstefnulega hannaður og býður upp á einstaka akstursupplifun í flokki hágæða rafbíla með vegan innréttingu sem staðalbúnað, sjálfbærniáherslu í öllu efnisvali, leiðandi tækni og notendavæna akstursupplifun.

Polestar 2 var heimsfrumsýndur árið 2020 og hlaut mikið lof frá viðskiptavinum, aðdáendum og fjölmiðlum. Polestar 2 er margverðlaunaður. Hann hlaut titilinn „Bíll ársins“ í Noregi og Sviss, var kosinn besti alhliða rafbíllinn af BBC Top Gear Magazine, hlaut Red Dot-verðlaunin fyrir framúrskarandi hönnun og eftirsótta titilinn „Gullna stýrið“ í Þýskalandi.

„Polestar 2 er mjög aðlaðandi og kraftmikill bíll sem státar af framúrstefnulegri og nútímalegri hönnun sem tekið er eftir og viðskiptavinir okkar eru hæstánægðir,“ segir Thomas Ingenlath, forstjóri Polestar. „Hann býr yfir fullkominni samsetningu eiginleika: rafknúinn, sjálfbær, stafrænn, glæsilegur með framúrskarandi aksturseiginleika – allt það besta sem til er.“

Polestar 2 var fyrsti bíllinn í heiminum sem kom á markað með upplýsinga- og afþreyingarkerfi frá Android með innbyggðum Google-eiginleikum. Android Automotive upplýsinga- og afþreyingarkerfið býður upp á traust og aðlögunarhæft stafrænt umhverfi þar sem smáforrit og virkni bílsins samþættast. Kerfið býður í fyrsta sinn upp á innbyggða Google-þjónustu í bíl – þar á meðal Google Assistance, Google Map með stuðningi fyrir rafbíla og Google Play Store. Náttúruleg raddstýring ásamt 11 tommu snertiskjá hleypa lífi í þetta nýja viðmót. Stöðug nettenging tryggir einnig að smáforritin eru ávallt uppfærð, sem og bíllinn sjálfur. Polestar notar þráðlausar uppfærslur (OTA) til reglulegra uppfærslna á hugbúnaði bílsins og til uppfærslu á nýjum búnaði, og sér þannig til þess að Polestar 2 sé alltaf eins og glænýr bíll.

Polestar 2 verður í boði á Íslandi með stóra 78 kWh drifrafhlöðu og tvo rafmótora sem skapar einstakt fjórhjóladrifsgrip með heildarafköstum sem nema 300 kW / 408 hestöfl og 660 Nm togi. Auk ríkulegs staðalbúnaðar er Pilot pakki í boði sem inniheldur háþróaða akstursstuðningstækni og uppfærða innilýsingu ásamt mörgu öðru.

Performance pakkinn sem inniheldur Brembo-hemla, stillanlega Öhlins-dempara, 20 tommu þrykktar álfelgur og einkennandi „Swedish Gold“ hönnunaráherslur, er í boði sem aukabúnaður og hefur akstursupplifunina upp á hærra svið.

Polestar 2 Long range Dual motor kostar 6.750.000 kr. og honum fylgir fimm ára ábyrgð, átta ára ábyrgð á drifrafhlöðu, þjónusta og viðhald í þrjú ár, ókeypis lánsbíll við reglulega þjónustu og ábyrgðaviðgerðir og vegaþjónusta um land allt.

Um Polestar

Sænska fyrirtækið Polestar var stofnað sem nýr og sjálfstæður framleiðandi hágæða rafbíla með afburða aksturseiginleika árið 2017. Það var stofnað af Volvo Cars og Geely Holding og nýtur tæknilegrar og verkfræðilegrar samvirkni við Volvo Cars og ávinnings af verulegri stærðarhagkvæmni gegnum tengsl sín við Volvo.

Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Gautaborg í Svíþjóð og bílarnir eru nú komnir í umferð á 14 markaðssvæðum víðs vegar um Evrópu, Norður-Ameríku og Kína. Árið 2021 hefur Polestar bætt við átta nýjum markaðssvæðum í Evrópu, Miðausturlöndum og Asíulöndum við Kyrrahaf. Um þessar mundir eru Polestar-bílar framleiddir í tveimur verksmiðjum í Kína, en frekari framleiðsla er fyrirhuguð í Bandaríkjunum.

Í september 2021 tilkynnti Polestar að fyrirtækið hygðist skrá sig sem opinbert hlutafélag á Nasdaq með samningi við Gores Guggenheim, Inc. um sameiningu fyrirtækja. Allar upplýsingar um endanlega útgáfu samningsins er að finna hér

 Brimborg er söluaðili Polestar á Íslandi. Polestar Space sýningarsalur opnar í Reykjavík hjá Brimborg þann 25. nóvember næstkomandi en stærri, framtíðar Polestar Destination sýningarsalur opnar í Brimborg á fyrsta fjórðungi ársins 2022.

Polestar 2, hágæða rafbíll með afburða aksturseiginleika, er fyrsti fjöldaframleiddi rafbíll fyrirtækisins. Á Íslandi verður Polestar 2 í boði með tveimur rafmótorum, stærri 78 kWh drifrafhlöðu og allt að 300 kW / 408 hestöflum og 660 Nm togi.

Í framtíðinni er stefnt að því að bæta Polestar 3, hágæða rafmagnsjeppa með afburða aksturseiginleikum við línuna, sem og hugmyndabílnum Precept sem kom út árið 2020 og er í þróun fyrir framtíðarframleiðslu

Precept endurspeglar framtíðarsýn vörumerkisins hvað varðar sjálfbærni, stafræna tækni og hönnun. Í apríl 2021 tilkynnti Polestar um þau áform sín að skapa fullkomlega kolefnishlutlausan bíl fyrir árið 2030.