Fara í efni

Nýr Isuzu D-Max

Fréttir

BL við Sævarhöfða hefur fengið fyrstu sendingu nýrrar og glæsilegrar kynslóðar pallbílsins Isuzu D-MAX sem vinsæll hefur verið hér á landi, en ekki síst meðal atvinnurekenda, verktaka og opinberra aðila á borð við sveitarfélög.

Í boði eru þrjár útfærslur, Basic, Pro og Lux. Allar gerðir, sem búnar eru tveggja lítra, 160 hestafla dísilvél, eru vel búnar öryggis- og þægindabúnaði og hefur bíllinn m.a. þegar hlotið fullt hús stiga hjá evrópsku öryggisstofnuninni Euro NCAP. Meðal staðalbúnaðar í Basic, beinskiptri grunngerð Isuzu D-MAX, má nefna aðdráttar- og veltistýri, blindhornaviðvörun, stöðugleikastýringu, akreinavara, aðvörun vegna hliðarumferðar, sjálfvirka neyðarhemlun og hemlajöfnun, neyðarakreinastýringu auk brekkuaðstoðar og stöðugleikabúnaðar fyrir drátt á aftanívagni. Burðargeta bílsins er 1.065 kg og dráttargetan 3,5 tonn. Vaðdýpt D-MAX er 80 cm og 24 cm eru undir lægsta punkt.

Nánari upplýsingar

Ítarlega lýsingu á öllum þæginda- og öryggisbúnaði sem hinar mismunandi þrjár útfærslur nýrrar kynslóðar Isuzu D-MAX hafa upp á að bjóða ásamt verði hverrar útfærslu er að finna á vefsíðu umboðins, BL.is eða isuzu.is hjá BL.