Hleðsla rafbíla
Hvað ber að hafa í huga við hleðslu rafbíla?
Fáið löggiltan rafverktaka til að yfirfara og aðlaga raflögnina áður en rafbíll er hlaðinn í fyrsta sinn.
- Hver tengistaður má einungis hlaða einn rafbíl í einu
- Hver tengistaður skal varinn með yfirstraumvarnarbúnaði sem einungis ver þennan tiltekna tengistað
- Hver tengistaður skal varinn með bilunarstraumsrofa (lekastraumsrofa) sem einungis ver þennan tiltekna tengistað
- Bilunarstraumsrofinn ætti að vera af gerð B – þó má nota gerð A sé jafnframt notuð viðbótarvörn
- Mælt er með að ekki séu notaðir hefðbundnir heimilistenglar til hleðslu rafbíla
- Mælt er með að til heimahleðslu rafbíla séu notaðar þar til gerðar hleðslustöðvar eða iðnaðartenglar
- Stranglega er bannað að nota framlengingarsnúru, fjöltengi eða önnur „millistykki“ við hleðslu rafbíla
- Hleðslustrengir mega ekki liggja þar sem þeir geta orðið fyrir hnjaski, t.d. yfir vegi, gangstéttar eða stíga
- Ekki nota hleðslusnúru eða annan búnað sem hefur skemmst
Einnig má nálgast nánari upplýsingar um hleðslu rafbíla í bæklingi Mannvirkjastofnunar HÉR.
Frekari upplýsingar fyrir fagmenn er hægt að nálgast á vef Mannvirkjastofnunar HÉR.
Upplýsingar eru fengnar frá Mannvirkjastofnun sem m.a. hefur yfirumsjón með rafmagnsöryggismálum á Íslandi.