Ályktun frá aðalfundi Bílgreinasambandsins.
Aðalfundur Bílgreinasambandsins haldinn í Bændahöllinni v/Hagatorg fimmtudaginn 26. mars 2009 hvetur stjórnvöld til að huga að starfsskilyrðum bílgreinarinnar hér á landi í ljós þess efnahagsástands sem við búum við í dag. Nokkur þúsund manns hafa atvinnu af bílgreininni beint og óbeint og því er lífsviðurværi fjölmargra fjölskyldna í húfi sem og öll þekking innan greinarinnar .
Greinargerð:
Á árinu 2006 voru tekjur ríkissjóðs af bifreiðakaupum landsmanna liðlega 19. miljarðar. 2007 voru þeir liðlega 21. miljarður og á síðasta ári voru þeir liðlega 14. miljarðar Reikna má með að tekjur ríkissjóðs af bifreiðakaupum á þessu ári verði aðeins um 2 miljarðar miðað við óbreytt ástand eða samdráttur um 90% ef borið er saman við árið 2007. Heildartekjur ríkissjóðs af ökutækjum árið 2006 voru 50 miljarðar eða tæplega 12% af tekjum ríkissjóðs það ár. Tekjusamdráttur hins opinbera af verslun með bifreiðar er mikill en því er hægt að breyta að mati Bílgreinasambandsins.
Bifreiðin er nauðsynleg hér á landi og skiptir öllu máli í þeim tilgangi að landið haldist í byggð.
Þeir sem hafa atvinnu að því að selja og þjónusta bifreiðar eru vanir sveiflum í sínu starfsumhverfi en nú er það fyrirséð að greinin er að sigla inní dýpsta öldudal sem sést hefur til þessa. Háir vextir, hátt gengi, takmarkaður aðgangur að lausafé og hátt verðbólgustig kemur hvað harðast niður á bílgreininni og byggingariðnaðinum af öllum starfsgreinum hér á landi eins og tölur hafa sýnt.
Afar brýnt er að stjórnvöld bregðist rétt við og í samstarfi við greinina með það markmið að vernda þá þekkingu sem greininn býr yfir og þær þúsundir starfa sem húfi eru útum allt land. Öll greinin á við mikinn vanda að etja ss. bifreiðaumboð, bílaleigur, bílasalar, verkstæði sem og fjármögnunarfyrirtæki svo eitthvað sé nefnt.
Bílgreinasambandið leggur til að stjórnvöld skipi aðgerðarhóp með fulltrúum ríkisvaldsins og hagsmunahópum úr greininni til að finna lausnir er bjargað geta greininni frá algjöru hruni. Bílgreinasambandið er tilbúið í þá vinnu sem gætu komið greininni til góða og stoppað þá óheillaþróun sem farinn er af stað og gæti kostað þúsundir manna atvinnu sína, rýrt framtíðarmöguleika þeirra fjölmörgu sem hafa menntað sig í greininni og eru að því í dag.
Miklir fjármunir eru í húfi sem og gríðarleg þekking sem erfitt og dýrt er að byggja upp á nýtt og verður ekki gert á skömmum tíma.
Bílgreinin er burðarásinn og mikilvægasti þátturinn í öllum samgöngum hér á landi og því miklir hagsmunir í húfi sem nauðsynlegt er að bregðast fljótt og örugglega við.