Fréttir


Finnbogi Eyjólfsson í Heklu er látinn.


 
Finnbogi Eyjólfsson, oft kenndur við HEKLU lést sunnudaginn 7. mars sl.  Finnbogi var fæddur 25. júlí 1925 og hefði því orðið 85 ára í sumar. Hann var á sínu 65 starfsári í HEKLU en hann mætti þar fyrst til vinnu 1. apríl 1945. Finnbogi átti mikinn þátt í að skapa sögu félagsins og stuðst var við þekkingu hans og hæfni alveg fram á síðasta dag.
Finnbogi hlaut heiðursmerki fálkaorðunnar frá Forseta Íslands árið 2004 fyrir störf sín í þágu bílgreinarinnar.  Finnbogi starfaði mikið fyrir Bílgreinasambandið og stýrðir aðalfundi þess síðast árið 2008.

Nánar verður upplýst um jarðarför Finnboga síðar.
 


<Til baka

Gylfaflöt 19
112 Reykjavík
símí 5681550 Fax 5689882