Loftkælingin í bílnum getur valdið heilsuskaða.
02 júlí 2010
Miðstöðvar í flestum nýjum bílum eru með loftkælingu (aricondition) sem þýðir að ökumenn og farþegar í þessum bílum eru útsettari fyrir sýkingum vegna sveppa og ýmiskonar baktería sem hugsanlega geta lifað góðu lífi í kerfinu segir í MotorMagasinet.
Svala loftið getur innihaldið ýmiss konar óæskilega gesti sem geta svo haft áhrif á heilsu fólks, sérstaklega fólk með astma og ofnæmi en allir geta átt það á hættu að veikjast þar sem bakteríurnar geta verið mjög skæðar. Þar sem loftkæling er orðin staðalbúnaður í flestum bílum, dýrum sem ódýrum er rétt að fólk hafi varan á sér og hreinsi loftkerfið eða látið hreinsa það ef það finnur fyrir óeðlilegir lykt úr miðstöðvarkerfi bílsins.
Helst er hætta á að einhver óáran taki sér bólfestu í miðstöðvakerfi bílsins ef loftkælingin er ekki í notkun lengi í einu. Bílar sem eru með sjálfvirka miðstöð er þetta vandamál síður þekkt nema ef bíllinn stendur lengi óhreyfður en þeir bílar þar sem loftkælingin er handvirk þe. ökumaður kveikir og slekkur á henni eftir þörfum er áhættan meiri á að bakteríur geti tekið sér bólfestu.
Hreinsun á þessum búnaði er ekki dýr, hægt er að fá hvaða viðurkennt verkstæði til að hreinsa kerfið og einnig er hægt að kaupa svo kallað AriCondition Cleaner sem er spray sem er látið í bílinn þegar kveikt er á loftkælingunni sem sér svo um að drepa niður það sem ekki á að vera í miðstöðvarkerfinu segir í danska bílablaðinu MotorMagasinet.
<Til baka