Nýr Mini í haust.
29 júní 2010
Á haustmánuðum eða nánar tiltekið í september mun Mini verða kynntur með alveg nýjum vélum sem og smá uppfærsla er á útliti þessa „stóra“ smábíls.
Framendinn er breyttur og líka hannaður þannig að ef fólk lendir fyrir bílnum eiga áverkar að vera minni en ella, eitthvað í hönnun framendans á að draga úr áverkum. Loftinntökin eru öðruvísi sem og sérstök loftinntök eru sem beina loftflæði að bremsudiskum sem eiga að kæla þá. Díóðuljós eru í afturljósunum og eru bremsuljósin sérstaklega áberandi. Inn í bílnum hafa verið gerðar breytingar á hljómflutningstækjum sem eru orðin mun fullkomnari, bæði með mp3 og AUX tengi og betri og flottari stjórnunarskjá. Einnig er innbyggð blátönn fyrir síma og USB tengi fyrir hljóð og mynd sem hægt er að skoða á upplýsingaskjá. Áklæði og annað í innréttingu er orðið allt betur úr garði gert með meiri gæðum og nýjum litum.

Stærsta breytingin er ný díselvél sem er í bílnum sem er úr áli og gefur meiri kraft á sama tíma og eyðslan dregst saman sem og útblásturinn og er með því minnsta sem þekkist. Vélin er 1,6 lítra eins og forverinn en alveg ný hönnun frá BMW . Hún verður boðin sem 90 hestafla í Mini One D og 112 hestafla í Mini Cooper D og þar skilar hún 270 Nm. Í báðum tilfellum eyðir bíllinn ekki meira en 3,8 l./100.km. og losun á Co2 er 99gr. Bensínvélin í Mini One er 184 hestöfl og í Cooper er hún 211 hestöfl. Líka verður hann boðin með 75 eða 98 hestafla vél og er svokölluð start/stopp tækni staðalbúnaður í öllum bílunum.
<Til baka