Eldri fréttir


Stigvaxandi sala nýrra bíla.


24 júní 2010
 
Það sem af er ári hefur sala á bílum hér á landi aukist um liðlega 28%. Sömu sögu er að segja af nágrönnum okkar í Danmörku en þar hefur verið jafn vöxtur allt árið og í maí sl. var söluaukningin tæp 40% eða 12.856 seldir bílar. 
 
Að sögn Bent Mikkelsen framkvæmdastjóra De Danske Bilimportörer eru menn bjartsýnir innan bílgreinarinnar þar í landi og spá því að nú sé sölusamdráttur sl. tveggja ári yfirstaðin og fólk fari að huga að endurnýjun bílaflotans. Bent segir að almennt sé ástand efnahagsmála að ná betra jafnvægi þar í landi og það endurspeglist strax í bílasölu. Mesta aukningin er í millistórum fjölskyldubílum. 
 
Eins og sagt er frá hér að framan hefur það sama verið uppá teningnum hér á landi en stígandi hefur verið í sölu nýrra bíla allt þetta ár og er búist við að það haldi áfram enda full þörf á þar sem bílafloti okkar er að meðaltali 10,2 ára sem er með því hæsta ef við berum okkur saman við lönd Evrópusambandsins sem er ekki gott ef við hugsum það útfrá mengun og öryggi. 


<Til baka