Sparaksturskeppni FÍB og Atlantsolíu fór fram 26. maí síðastliðinn, en keppnin var haldin í fimmta sinn. Eknir voru 143km, frá bensínstöð Atlantsolíu við Húsgagnahöllina, upp Mosfellsdal, meðfram Þingvallavatni, í gegnum Selfoss, Þrengslin og endað aftur við Húsgagnahöllina. Alls tóku 15 bílar frá 6 bílaumboðum þátt í keppninni að þessu sinni.
Nýr sjálfskiptur Honda CR-V 2.2i-DTEC,ók hringinn með aðeins 5,8L/100km meðaleyðslu og bar sigur úr bítum í flokki jeppa og jepplinga. Það var Carl Skúlason sölumaður Bernhard sem ók bílnum. Miðað við þessa meðaleyðslu kemst CR-V rétt tæpa 7 hringi eða um 1.000km á tankfylli.