Eldri fréttir


Ford Fiesta bestur að mati Disel Car tímaritsins.


21 júní 2010
Ritstjóri Diesel Car, Ian Robertson, hafði þetta að segja við afhendingu verðlaunanna: „Það er frábært að aka Ford Fiesta, hann lætur vel að stjórn og stýringin er nákvæm. Þessi blanda góðs útlits, sparneytinnar dísilvélar og hressandi hönnunar innandyra gerir hann að sönnum sigurvegara í okkar augum.“

Mark Simpson, framkvæmdastjóri markaðsdeildar Ford í Bretlandi, sagði: „Nýjasti Ford Fiesta er á góðri leið með að verða ný táknmynd Ford. Breskur almenningur elskar stíl Fiesta en, eins og kemur fram hjá Diesel Car tímaritinu, fellur það fyrir akstursupplifuninni um leið og það er komið undir stýri.“

Ford tilkynnti í vor að ESP stöðugleikastýrikerfi yrði staðalbúnaður í Ford Fiesta. Bluetooth og USB tenging eru staðalbúnaður í Titanium módelinu, dísilvélarnar eru aflmeiri og losun koldíoxíðs er minni.

Ford Fiesta og Ford Focus eru í efstu tveimur sætunum yfir mest seldu bíla í Bretlandi segir í frétt á heimasíðu Brimborgar.


<Til baka