Eldri fréttir


Ný VW Jetta frumsýnd á Times Square


18 júní 2010

 

 

 

 

 

 

Volkswagen frumsýndi nýja Jettu á Times Square í New York á þriðjudaginn var. Ber mönnum saman um að þarna hafi VW með afgerandi hætti skilið Jettuna frá Golf en oft hefur verið haft á orði að Jetta væri Golf með bakpoka!.. Jetta var frumsýnd fyrst árið 1979 og þótti alltaf hafa verið eins og Golf en nú sé því lokið þar sem um ólíka bíla sé að ræða. 

Nýja Jettan er 9 cm. lengir en forverinn eða 464 cm.  og 7 cm. lengra á milli hjóla (265 cm.) sem þýðir mun betra innanrými. Baksætin eru tvískipt 60/40 og hægt er að fella þau niður til þess að auka flutningsgetuna. 
 
Í USA verða fjórar gerðir af vélum í boði, 2,0 lítra díselvél sem skilar 320Nm en vitandi að í USA eru díselbílar ekki jafn vinsælir og í Evrópu þá eru líka í boði öflugar bensínvélar.  Í USA og Kanada verður Jetta boðin með fjögra strokka 2,0 lítra og 2,5 lítra fimm strokka vél. Frá og með 2011 verðu svo 2,0 lítra TSI vél með forþjöppu sem skilar 200 hestöflum einnig í boði. Fyrst í stað verður boðið uppá sex gíra handskiptingu og sjálfskiptingu. Seinna kemur svo DSG sex gíra skipting sem bæði er hægt að nota sem beinskiptingu og sem sjálfskiptingu.
 
Í Evrópu verður Jettan boðin með sex vélagerðum. 1,2 lítra TSI bensínvél sem skilar 105 hö. og 1,4 lítra vél sem skilar annaðhvort 122 eða 160 hö. Einnig verður boðin 2,0 lítra vél með forþjöppu sem skilar 200 hö. Þeir sem vilja díselvél geta svo valið um 1,6 lítra TDI sem skilar 105 hö eða 2,0 lítra TDI sem skilar 140 hö. Bæði verður handskipting og DSG skipting í boði.
 
Með 1,2 lítra bensínvélinni  og 1,6 lítra díselvélinni verður Blue Motion tækni í boði þar sem svokölluð start/stopp tækni er notuð. VW lofar 5,3 lítra eyðslu á 100 km með bensínvélinni og losun á Co2 er 123 gr/km. Díselvélin er gefin upp fyrir 4,1 lítra á 100 km. Og losun á Co2 er 109 gr/km.
Öryggi bílsins er gert hátt undir höfði og meðal staðalbúnaðar eru 6 loftpúðar, hleðslujöfnun, sjálfvirk vöktun á loftþrýstingi í dekkjum ofl.   Af öðrum búnaði bílsins hefur lítið verið sagt frá en hann verður frumsýndur fyrir okkur Evrópubúa á bílasýningunni í París í byrjun október, þangað til verðum við að láta myndirnar af bílnum nægja.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 


<Til baka