Eldsneytissparandi dekk varhugaverð.!
15 júní 2010
Danska bílablaðið MotorMagasinet fjallar um nýja gerð dekkja sem eru að ryðja sér til rúms á nýjum bílum í dag en það er dekk sem sögð eru spara eldsneyti og eru með litla mótstöðu.
Blaðið tala við ma. forstjóra Continental Dæk Danmark A/S Gerorg Nielsen en hann bendir á að þó svo að þessi dekk séu góð fyrir umhverfið og spari eitthvað að peningum neytenda þegar kemur að eldsneytiskaupum, þá gagnist þessi dekk ekki til þess að auka umferðaröryggi. Þessi dekk hafi mun minna grip en önnur dekk þar sem allt er gert við framleiðslu þeirra til að minnka mótsstöðu. Það kemur niður á gripi þeirra og gerir það að verkum að bremsuvegalengd verður lengri þegar það þarf að nauðhemla sem og gripið á vegum og þá sérstaklega þegar vegir eru blautir sé mun minna og geti skapað hættu.
<Til baka