Bílasýninginn í Genf opnuð almenningi í dag.
04 mars 2010
Bílasýningin í Genf var opnuð fyrir almenning í dag 4. mars en þar má sjá ýmsar nýjungar frá flestum framleiðendum, hvort sem um nýja bíla eða uppfærslur á þeim sem fyrir eru á markaði.
Það sem er athyglivert er hvað bílaframleiðendum hefur tekist að ná niður eldsneytiseyðslu nýrra bíla sem þýðir minnkun á losun óæskilegra efna útí andrúmsloftið eins og Co2. Er það helsta keppikefli bílaframleiðanda að ná niður eyðslu og hefur gríðarlegum árangri á því sviði verið náð nú á allra síðustu árum og þróunin heldur hratt áfram.
Til að nefna einhver dæmi þá hefur Hyundai bílaframleiðandinn minnkað meðaltalslosun allra Hyundai bíla um 10% á milli áranna 2009 og 2010 en meðaltalslosun Hyundai er 148 g/km af Co2.
Hyundai var á dögunum kosin bílaframleiðandi ársins af breska AM Magazine. Ástæðan er þjónustan, gæði, sala og árangur í því að draga úr losun Co2.
Hyundai kynnir á sýningunni nýja bíl fyrir Evrópumarkað eða Hyundai iX35. Hann verður boðin bæði með bensín og díselhreyfli sem og með framdrifi eða sídrifi.
Stærð bílsins L/B/H er 4,41/1,82/1,67 m. Nánar verður fjallað um bílinn síðar.
<Til baka