Bílasprautun Magga Jóns ehf og Bílasprautun og rétting Auðuns fá BGS gæðavottun.
03 mars 2010
Málningar- og réttingarverkstæði fá BGS vottun
Tvö ný verkstæði hafa nú bæst í hópinn sem fá starfsemi sína þjónustuvottaða frá Bílgreinasambandinu (BGS-vottuð þjónusta). Þessi verkstæði eru Bílasprautun Magga Jóns ehf. í Reykjanesbæ og Bílasprautun og rétting Auðuns í Kópavogi. Fjögur verkstæðið hafa nú fengið vottun samkvæmt nýrri útgáfu af BGS staðlinum útgáfu 2.0.2009.
Stöðugt bætast við ný málningar- og réttingarverkstæði sem hafa sótt um vottun. Markmiðið með þjónustuvottun Bílgreinasambandsins er að auka gæði í starfsemi og þjónustu verkstæðanna til hagsbóta fyrir verkstæðin sjálf og viðskiptavini þeirra.
Iðan fræðslusetur býður nú námskeið og „workshop“ til að aðstoða verkstæði við að taka upp þjónustuvottun samkvæmt BGS staðlinum.
Þjónustuvottun Bílgreinasambandsins (BGS-vottuð þjónusta) var kynnt í árslok 2007. Þegar verkstæði hafa uppfyllt BGS-staðalinn fá þau staðfestingu á að þau séu þjónustuvottuð (sérstakt viðurkenningarskjal og lógó til staðfestingar) og í framhaldinu er vottuninni viðhaldið með reglubundnu eftirliti tvisar á ári.
Vottun Bílgreinasambandsins býðst:
· Bifreiðaverkstæðum
· Vélaverkstæðum
· Málningar- og réttingarverkstæðum
· Smurstöðvum
Fyrirhugað er að bjóða bílapartasölum einnig að fá vottun samkvæmt staðlinum.
Allar nánari upplýsingar um vottunarferlið er hægt að nálgast á heimasíðu BSI á Íslandi www.bsiaislandi.isauk staðalsins.
Nánari upplýsingar um námskeið Iðunnar má finna á www.Idan.is bílgreinasvið.
Þá má finna á vef bílgreinasambandsins www.bgs.is lista yfir þjónustuvottuð verkstæði.
Bílgreinasambandið óskar báðum þessum aðilum til hamingju með þennan áfanga.
<Til baka