GB tjónaviðgerðir fá fimm stjörnur frá Sjóvá.
01 mars 2010
Sjóvá hefur veitt GB tjónaviðgerðum viðurkenningu sem fyrsta fimm stjörnu verkstæði Sjóvár. Síðan hafa ellefu önnur verkstæði fengið viðurkenningu í þriggja eða fimm stjörnu flokki. Sjóvá hefur á þessu ári gert úttektir á verkstæðum m.t.t. krafa Sjóvá og hafa verkstæði fallið í einnar, þriggja eða fimm stjörnu flokk. Stjörnugjöf Sjóvá á að auðvelda viðskiptavinum að velja verkstæði og fullvissa þá um hámarksgæði í viðgerðum og þjónustu. Með þessu móti vonast Sjóvá til að treysta samskipti við verkstæði og stuðla að framþróun og betri þjónustu við viðskiptavini Sjóvá.
Stjörnuflokkun verkstæða:
• Ávísun á gæði fyrir viðskiptavini Sjóvá
• Stuðlar að færri kvörtunum
• Stuðlar að góðum vinnubrögðum
• Er hvati fyrir verkstæði til að ráða fagmenntaða starfsmenn
• Er hvati fyrir verkstæði til að taka upp vottað gæðakerfi BGS
Með þessu verkefni vill Sjóvá auka gæðavitund verkstæða, stuðla að því að verkstæði fari í gæðavottun og þannig koma til móts við þarfir viðskiptavina með gæðaþjónustu sem tryggir hagsmuni þeirra.
Upplýsingar um hvaða verkstæði eru í stjörnuflokkun Sjóvá verður að finna á www.sjova.is.
<Til baka