Peugeot RCZ fallegasti bíllinn.!
26 febrúar 2010
ATKVÆÐI hafa verið greidd og talin. Úrslitin liggja fyrir: Peugeot RCZ er fallegasti bíll síðasta árs. Bar hann sigurorð af BMW Z4, Citroën DS3 og Nissan 370Z
Peugeot RCZ var valinn fallegasti bíllinn á síðasta ári en 100.000 manns í 62 löndum greiddu atkvæði um fallegasta bílinn á Netinu.
Niðurstaðan var birt og viðurkenning afhent á sérstakri bílahátíð í París sem haldin var í 25. sinn.
RCZ-bíllinn, sem þykir svipa til Audi TT, sigraði örugglega en þetta er í fjórða sinn sem Peugeot vinnur til þessi eftirsóttu verðlaun. Og er eflaust kærkomin viðurkenning á afmælisári, en í ár eru liðin 200 ár frá því að Peugeot-fyrirtækið hóf starfsemi.
Á bílnum er óvenjulega mótað glerþak sem á sér engan líkan í veröldinni. Þá er hann allur leðurklæddur innandyra.
Peugeot RCZ-bíllinn verður fáanlegur með annaðhvort 156 eða 200 hesta 1,6 lítra bensínmótor, eða 2,0 lítra og 163 hesta dísilvél. Í öflugustu útgáfunni fer hann úr kyrrstöðu í 100 km/klst á 7,6 sekúndum og hámarkshraði er 225 km/klst. Sá bíll fer með 7,11 lítra af bensíni á 100 km í blönduðum akstri.
Peugeot RCZ var frumsýndur á bílasýningunni í Frankfurt sl. haust. Hann fer í almenna sölu í Frakklandi í mars og annars staðar í Evrópu í vetrarlok og sumarbyrjun. Margur bíláhugamaðurinn og dyggir viðskiptavinir Peugeot bíða hans með óþreyju. Hann mun, allt eftir útgáfum, kosta á bilinu 20-24 þúsund evrur í Evrópu segir í frétt bílablaðs Morgunblaðsins í dag.
<Til baka