Eldri fréttir


VW Polo GTI


18 febrúar 2010
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
VW sýnir nýja Poloinn á bílasýningunni í Genf sem GTI útfærslu. Poloinn er með 1,4 lítra TSI vél sem er 180 hö. og skilar bílnum frá 0 til 100 km/klst. á 7,2 sek.
 
Eflaust eru margir sem muna eftir fyrsta VW Golf GTI sem voru snaggaralegir og sprækir bílar og nutu feikna vinsælda þrátt fyrir að hafa aðeins verið með 112 hö vél.!
Það var ekki að hestöflin hefðu verið aðalatriðið í þeim bíl og þau oftast færri á þeim árum, en Golfinn var lítill og léttur í þá daga. Nýi Golfin er mikið stærri bíll með meiri búnaði og þal. mun þyngri.
Hinsvegar er Polo minni og léttari bíll þó hann sé ekki neinn smábíll og innrarýmið er svipað og í Golf IV.
 
Þessi nýja GTI vél í Polo er með tvöfaldri túrbínu sem gerir það að verkum að hægt er að ná útúr henni 180 hestöflum og togi uppá 250Nm.
Skiptingin er 7 gíra DSG sem bæði er hægt að skipta handvirkt í stýri eða þá láta sjálfskiptinguna sjá um verkið. Drifbúnaðurinn er sá sami og í Golf eða það sem VW kallar XDS sem vinnur með bremsukerfi bílsins og sér til þess að ekkert hjól missi grip og fari uppí spól sem gerir það að verkum að bíllinn er sérlega stöðugur.
 
Útlit bílsins er sportlegt og má þar nefna 17 tommu álfelgur, tvöfalt púst, rautt og svart GTI grill ofl.
Polo GTI verður frumsýndur á bílasýningunni í Genf í næsta mánuði og fljótlega eftir það verður bíllinn boðin til sölu á öllum mörkuðum. Hægt verður að fá hann annaðhvort í 3 eða 5 dyra útfærslu.                                                                                                                                                      
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 


<Til baka