Hyundai eykur við sig í USA
17 febrúar 2010
Hyundai Motor Co. Ætlar sér að auka framleiðslu sína á nýjum Hyunda Tucson fyrir Bandaríkja markað þar sem þeir reikna með mikilli eftirspurn þar í ár.
Hyundai kynnti nýjan Tucson í desember sl. en um er að ræða mikið breyttan bíl frá forvera sínum eins og myndin hér segir til um.
Við hönnunina var miðað við þarfir og smekk ungs fólks af sögn talsmanna Hyundai og hafa viðbrögð ekki staðið á sér í Bandaríkjunum en aukning í sölu í janúar sl. 128% miðað við sama mánuð árið á undan.
Að sögn Hyundai munu þeir auka framleiðsluna eins mikið á markaðurinn kallar eftir og virðist engin mörk vera á því hvað þeir geta í þeim efnum.
Segjast þeir hagnast á óförum Toyota í USA því margir viðskiptavinir Toyota komi nú yfir til þeirra án þess þó að nefna tölur í því samhengi.
Hinsvegar var Hyundai eitt af fáum bílamerkjum sem jók við sig í sölu í USA á síðasta ári en salan hjá þeim jókst um 24% miðað við árið á undan.
Einnig reikna talsmenn Hyundai með að auka sölu á Hyundai Sonata þar í landi en Sonata hefur átt góðu gengi að fagna í USA og hefur aukið markaðshlutdeild sína jafnt og þétt frá því bíllinn var fyrst kynntur þar árið 1989.
<Til baka